Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. mars 2015 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Martinez: Leikmenn eru ekki að njóta þess að spila
Roberto Martinez og hans menn eru í vanda.
Roberto Martinez og hans menn eru í vanda.
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, stjóri Everton, segir að sína leikmenn skorti ástríðu og að þeir séu ekki að njóta þess að spila í ensku úrvalsdeildinni.

Everton tapaði 2-0 gegn Arsenal í gær og hefur gengið afleitlega á tímabilinu. Liðið er í 14. sæti og með einungis einn sigur í síðustu 11 deildarleikjum. Á meðan hefur liðinu gengið mjög vel í Evrópudeildinni.

,,Þetta hefur verið meira eins og skylduverk heldur en að menn séu að njóta fótboltans," sagði Martinez.

,,Ég hef ekki séð það í liðinu að menn séu að njóta leikja í deildinni, þar sem stig eru í húfi."

,,Ég hef séð að menn njóta þess að spila í Evrópudeildinni, en mér finnst hópurinn vera að verða betri."


Athugasemdir
banner
banner
banner