Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2015 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Tevez skoraði beint úr aukaspyrnu
Mynd: Getty Images
Carlos Tevez er orðinn markahæsti maður ítölsku deildarinnar eftir að hafa skorað fimmtánda mark sitt gegn Roma fyrr í kvöld.

Tevez kom Juventus yfir gegn 10 leikmönnum Roma sem náðu þó að jafna og tryggja sér stig.

Vassilios Torosidis, hægri bakvörður Roma, braut af sér rétt fyrir utan teig og fékk sitt annað gula spjald.

Tevez skoraði beint úr aukaspyrnunni og kom Morgan De Sanctis, markvörður Roma, engum vörnum við.


Athugasemdir
banner
banner