Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. mars 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Simeone: Þurfum menn eins og Torres
Fernando Torres kom til Atletico í janúar.
Fernando Torres kom til Atletico í janúar.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, hrósaði Fernando Torres í hástert eftir innkomu framherjans af bekknum í markalausu jafntefli liðsins gegn Sevilla í spænsku La Liga í gær.

Atletico hefði getað færst nær toppliði Real Madrid, sem einnig gerði jafntefli í kvöld, en tókst ekki að skora. Þrátt fyrir það var Simeone mjög ánægður með Torres.

,,Þetta var hörkuleikur. Ég elska hversu mikið þeir lögðu sig fram sem spiluðu," sagði Simeone.

,,Ég var virkilega ánægður með framlag Torres. Við þurfum menn eins og Torres, sem hafa þennan mikla ákafa."

Athugasemdir
banner
banner