Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. mars 2015 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Jafnt hjá Celta Vigo og Elche
Michael Krohn-Dehli gerði fyrsta mark leiksins.
Michael Krohn-Dehli gerði fyrsta mark leiksins.
Mynd: Getty Images
Celta Vigo 1 - 1 Elche
1-0 Michael Krohn-Dehli ('61)
1-1 David Lomban ('87, víti)

Celta Vigo fékk fallbaráttulið Elche í heimsókn í eina leik kvöldsins í efstu deild á Spáni.

Leikurinn var jafn framan af en heimamenn komust nær því að skora í fyrri hálfleik.

Það var Daninn Michael Krohn-Dehli sem kom Celta yfir í síðari hálfleik en gestirnir jöfnuðu úr vítaspyrnu þegar sigur heimamanna virtist vera í höfn.

Elche er tveimur stigum frá fallsæti eftir jafnteflið á meðan Celta Vigo siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner