Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. mars 2015 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Wenger í skýjunum með viðbrögð sinna manna
Wenger gat verið sáttur með sína menn í gær.
Wenger gat verið sáttur með sína menn í gær.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var í skýjunum með sína menn eftir góðan 2-0 sigur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Fyrst og fremst var Wenger ánægður með þann karakter sem sínir leikmenn sýndu með því að koma til baka með sigri eftir svekkjandi 3-1 tap gegn Monaco í Meistaradeildinni í síðustu viku.

,,Það var mjög mikilvægt að liðið myndi andlega svara fyrir síðasta leik og við gerðum það," sagði Wenger við heimasíðu Arsenal.

,,Við erum stoltir af viðbrögðunum sem við sýndum í dag. Vörnin var mun einbeittari heldur en á miðvikudagskvöld."

,,Það mikilvægasta var að svara fyrir vonbrigðin með sigri. Við náðum því, en það geta alls ekki allir komið svona til baka."

,,Það var nauðsynlegt fyrir okkur og það sem eftir er tímabilsins að vinna þennan leik."


Athugasemdir
banner