Heimild: DM
Filipe Luis segist vilja vera hjá Chelsea út samninginn þrátt fyrir áhuga frá Atletico Madrid.
Atletico seldi Luis til Chelsea á 16 milljónir punda síðasta sumar og skrifaði vinstri bakvörðurinn undir þriggja ára samning, eða til 2017.
Atletico seldi Luis til Chelsea á 16 milljónir punda síðasta sumar og skrifaði vinstri bakvörðurinn undir þriggja ára samning, eða til 2017.
,,Ég er ánægður hjá Chelsea. Ég vil vera hérna út samninginn," sagði Luis
,,Jose (Mourinho, stjóri Chelsea) biður ekki um neitt annað heldur en fullkomna einbeitingu fyrir hvern leik.
,,Við eigum níu virkilega erfiða leiki framundan og ég er einbeittur að þeim."
Athugasemdir