Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, hrósar Barcelona í hástert í dag en liðið slátraði Cordoba með átta mörkum gegn engu.
Cristiano Ronaldo gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Real Madrid í 2-3 sigri liðsins á Sevilla í dag en það var þó ekki hann sem var mest í sviðsljósinu í dag.
Barcelona fór illa með Cordoba á útivelli og vann 8-0. Luis Suarez skoraði þrennu og Lionel Messi gerði tvö mörk á meðan Neymar, Gerard Pique og Ivan Rakitic gerðu hin mörkin.
„Barcelona er með frábært lið. Sóknarmennirnir þeirra hafa mikil áhrif og eru allir svo góðir. Það kemur ekkert á óvart að þeir skori svona mikið af mörkum," sagði Ancelotti.
Madrídingar eru áfram tveimur stigum á eftir Barcelona þegar þrír leikir eru eftir en ljóst er að það verður spenna í deildinni fram að síðasta leik.
Athugasemdir