Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 02. maí 2015 21:06
Elvar Geir Magnússon
Úrslit dagsins - ÍR mun mæta varaliði sínu
Kári rúllaði yfir Hamar.
Kári rúllaði yfir Hamar.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
KFG komst áfram.
KFG komst áfram.
Mynd: Þorsteinn Ólafs
Það voru fjölmargir leikir í 1. umferð Borgunarbikarsins í dag og nóg af mörkum.

Jóhann Már Kristinsson tryggði Dalvík/Reyni leik gegn KA í næstu umferð, Örninn og Kári unnu sína leiki og mætast næst og KH mun leika gegn HK.

Ljóst er að ÍR mun mæta varaliði sínu í næstu umferð eftir að Léttir vann Elliða í dag. KV og Ægir unnu örugga sigra og mætast í næstu umferð.

Sindri komst áfram og mun mæta Hetti og þá er KFG að fara að mæta Árborg.

Nökkvi 0 - 1 Dalvík/Reynir
Mark: Jóhann Már Kristinsson ('90)

Mídas 3 - 4 Vatnaliljur
Markaskorara vantar.

Hamar 0 - 7 Kári
Mörk: Fjalar Örn Sigurðsson 3, Valgeir Daði Valgeirsson, Ragnar Þór Gunnarsson, Dominik Bajda og Sverrir Mar Smárason.

KV 3 - 0 SR
Mörk: Guðmundur Sigurðsson 2, Ásgrímur Gunnarsson.

Elliði 0 - 4 Léttir
Mörk: Þorleifur Sigurlásson, Viggó Pétur Pétursson, Orri Rafn Sigurðarson og Haukur Már Ólafsson.

Snæfell 1 - 7 KH
Mark Snæfells: Jóhannes Helgi Alfreðsson.
Mörk KH: Arnar Steinn Einarsson 3, Atli Sigurðsson og Alexander Lúðvígsson.

ÍH 0 - 2 Örninn
Mörk: Kwami Obaioni Silva Santos og Viktor Jes Ingvarsson.

Stál-úlfur 2 - 6 Ægir
Mörk Stál-úlfs: Karol Stempinski og Magnús Pálmi Gunnarsson.
Mörk Ægis: William Daniels, Magnús Pálmi Gunnarsson, Aron Ingi Davíðsson, Uchenna Michael Onyeador, William Daniels Mark, Milan Djurovic og sjálfsmark.

Hamrarnir 0 - 4 Magni
Mörk: Hreggviður Heiðberg Gunnarsson, Lars Óli Jessen, Arnar Geir Halldórsson og Símon Símonarson.

Hörður Í. 0 - 5 KFG
Mörk: Bjarni Pálmason 2, Andri Valur Ívarsson 2, Daði Kristjánsson.

Einherji 2 - 4 Sindri
Mörk Einherja: Sigurður Donys Sigurðsson 2.
Mörk Sindra: Einar Smári Þorsteinsson 2, Sigurður Bjarni Jónsson 2.
Athugasemdir
banner
banner
banner