Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. maí 2016 15:30
Elvar Geir Magnússon
Balotelli miður sín eftir að hafa klúðrað víti
Ofur Mario Balotelli.
Ofur Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Hinn eldhressi Mario Balotelli er þekktur sem ein besta vítaskytta Evrópu en hann er mannlegur eins og sýndi sig í 3-3 jafntefli AC Milan gegn Frosinone um helgina.

Vítaspyrna Balotelli í leiknum var varin af Francesco Bardi en síðar í leiknum fékk Milan aðra vítaspyrnu, Jeremy Menez fór þá á punktinn og skoraði.

Samkvæmt fjölmiðlum var Balotelli miður sín yfir því að hafa klúðrað vítinu, hann hringdi persónulega í Adriano Galliani, varaforseta félagsins, og baðst afsökunar.

Hér að neðan má sjá spyrnuna en AC Milan er í sjöunda sæti ítölsku A-deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner