Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. maí 2016 17:38
Elvar Geir Magnússon
Championship: Burnley komið upp í úrvalsdeildina
Sam Vokes skaut Burnley upp.
Sam Vokes skaut Burnley upp.
Mynd: Getty Images
Burnley 1 - 0 QPR
1-0 Sam Vokes ('61 )

Burnley er komið aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir árs fjarveru. Liðið vann 1-0 sigur gegn QPR í dag og er öruggt með annað af tveimur efstu sætum Championship-deildarinnar fyrir lokaumferðina. Tvö efstu liðin fara beint upp.

Middlesbrough og Brighton bítast um hitt sætið en liðin eru jöfn í 2. - 3. sæti með 88 stig og mætast í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni á laugardag. Jafntefli dugar Middlesbrough til að komast beint upp þar sem liðið hefur betri markatölu.

Liðið sem þarf að lúta í lægra haldi mun fara í umspilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner