Danny Drinkwater, miðjumaður Leicester, fer í eins leiks bann eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Manchester United í gær. Drinkwater fékk tvö gul spjöld og þar með rautt spjald.
Drinkwater virtist hafa öskrað ókvæðisorð að Michael Oliver, dómara leiksins, eftir að rauða spjaldið fór á loft.
Drinkwater virtist hafa öskrað ókvæðisorð að Michael Oliver, dómara leiksins, eftir að rauða spjaldið fór á loft.
Oliver minntist ekkert á það í skýrslu sinni eftir leik og því fer Drinkwater ekki í lengra bann.
Drinkwater missir af leiknum gegn Everton um næstu helgi en verður með gegn Chelsea í lokaumferðinni.
Leicester verður meistari ef Tottenham misstígur sig gegn Chelsea í kvöld. Ef Tottenham vinnur i kvöld þá fær Leicester annað tækifæri til að klára dæmið um næstu helgi.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir