Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. maí 2016 13:57
Elvar Geir Magnússon
Eggert og Grétar í fallhættu fyrir lokaumferð
Eggert (til hægri) í leik með Fleetwood.
Eggert (til hægri) í leik með Fleetwood.
Mynd: Getty Images
Ljóst er að annaðhvort Fleetwood eða Blackpool munu falla þegar lokaumferð ensku C-deildarinnar fer fram á sunnudaginn.

Fleetwood hefði getað tryggt sæti sitt í leik gegn Walsall í dag en tapaði 3-1. Eggert Gunnþór Jónsson spilaði fyrstu 59 mínútur leiksins. Grétar Rafn Steinsson er yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood.

Fleetwood er með 48 stig (-6 í markatölu) en Blackpool 46 stig (-19) fyrir lokaumferðina.

Fleetwood mætir botnliði Crewe á sunnudag en Blackpool leikur gegn Peterborough sem siglir lygnan sjó um miðja deild. Fleetwood fellur ef liðið tapar og Blackpool vinnur.
Athugasemdir
banner