Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   mán 02. maí 2016 22:08
Jóhann Ingi Hafþórsson
Frostaskjóli
Gary Martin: Vonandi getur Víkingur orðið Leicester Íslands
Gary Martin spilaði gegn gömlu félögunum í kvöld.
Gary Martin spilaði gegn gömlu félögunum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var algjörlega vegna aðstæðna, en hvað getur maður gert? Þetta er Ísland, völlurinn var ekki tilbúinn." sagði Gary Martin eftir leiðinlegt 0-0 jafntefli Víkings og KR í Frostaskjóli í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 0 -  0 Víkingur R.

Gary var þó ánæður með margt, þrátt fyrir hörmulegan völl og mikinn vind sem hafði mikil áhrif á leikinn.

„Við fengum stig, við vorum mjög góðir varnarlega og sköpuðum besta færið þegar Viktor átti að skora en ég er ánægður með stigið."

„Við reyndum að spila en það kom meiri vindur og völlurinn var að detta í sundur, það sást þegar Viktor var kominn einn í gegn, boltinn festist við lappirnar á honum. Ég vorkenni stuðningsmönnunum því þetta var ekki fótbolti."

Hann segir gott að hafa komið aftur á sínn gamla heimavöll.

„Þetta var ekkert spes fyrir mig, ég skipti um lið og ég er ánægður hjá Víkingum en það var gott að koma til baka til stuðningsmanna sem studdu mig lengi."

Hann var ekki sérstaklega ánægður með eigin frammistöðu en tekur fram að enginn hafi spilað sérlega vel í dag.

„Ég hefði verið það ef Viktor hefði skorað úr færinu, maður vinnur í 90 mínútur til að fá þetta eina færi. Það spilaði enginn vel í dag fyrir utan Dofra og varnarmennina."

Við spurðum Gary, sem er enskur, hvað honum fannst um að Leicester hafi orðið enskur meistari.

„Þetta er ótrúlegt fyrir fótboltann, þetta sýnir að peningar eru ekki allt. Þeir munu breyta fótboltanum og það verður áhugavert að sjá hvað liðin gera. Vonandi getur Víkingur orðið íslensku Leicester."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner