Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. maí 2016 17:30
Elvar Geir Magnússon
Lucas Neill gjaldþrota
Lucas Neill í leik með West Ham á sínum tíma.
Lucas Neill í leik með West Ham á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
Lucas Neill hefur verið lýstur gjaldþrota í Bretlandi. Þessi 38 ára fyrrum varnarmaður West Ham var á háum launum á leikmannaferli sínum sem lifði í tvo áratugi.

Hann var meðal annars hjá Millwall, Blackburn Rovers, Everton og Galatasaray auk þess sem hann lék 96 landsleiki fyrir Ástralíu.

Eggert Magnússon var stjórnarformaður West Ham þegar Neill var keyptur til West Ham og var veskið galopnað.

Neill hefur verið í allskonar braski með sína peninga og var meðal annars í fasteignaviðskiptum í Bandaríkjunum og þjálfaraviðskiptum í Sidney.
Athugasemdir
banner
banner
banner