Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. maí 2016 18:42
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Leikmenn Burnley fagna úrvalsdeildinni
Barton og félagar eru komnir aftur upp!
Barton og félagar eru komnir aftur upp!
Mynd: Getty Images
Það er brjálaður fögnuður í gangi hjá leikmönnum Burnley í kvöld eftir að félagið tryggði sæti sitt í úrvalsdeildinni á næsta ári með sigri á QPR í dag.

Burnley er á toppi Championship deildarinnar eftir sigurinn. Middlesbrough og Brighton spila úrslitaleik um hvort liðið kemst upp ásamt Burnley á laugardaginn. Sá leikur verður spilaður á heimavelli Middlesbrough sem nægir jafntefli vegna betri markatölu.

Þetta er mögulega besta árið í sögu enskrar knattspyrnu fyrir félag að komast í úrvalsdeildina vegna nýrra og himinhárra sjónvarpssamninga sem taka gildi á næsta tímabili.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá örstutt myndbrot frá brjáluðum fögnuði leikmanna Burnley eftir leikinn gegn QPR.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner