Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. maí 2016 21:49
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið sem tryggði Leicester titilinn
Mynd: Getty Images
Eden Hazard hefur ekki átt gott tímabil með Chelsea en hann er nýlega byrjaður að setja eitt og eitt mark eftir nánast árslanga markaþurrð.

Hazard kom inn af bekknum er Chelsea mætti titilbaráttuliði Tottenham í kvöld.

Hazard gerði jöfnunarmark leiksins á 83. mínútu og gerði þar með út um titilvonir Tottenham og tryggði um Leicester City titilinn, sem er merkilegt í ljósi þess að hann tryggði Chelsea einmitt Englandsmeistaratitilinn í fyrra.

Hægt er að sjá jöfnunarmark Hazard sem tryggði Leicester titilinn á vefsíðu Vísis.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner