Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. maí 2016 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ungur leikmaður Hannover lést í bílslysi
Niklas Feierabend
Niklas Feierabend
Mynd: Getty Images
Hræðilegar fréttir bárust úr herbúðum Hannover í gær, en ungur leikmaður liðsins að nafni Niklas Feierabend lést í bílslysi.

Feierabend, sem fékk sinn fyrsta atvinnusamning í febrúar, var farþegi í bil sem klessti á tré í gærmorgun. Tveir aðrir voru í bílnum, en þeir létust einnig.

„Allir liðsfélagar hans, þjálfararnir, starfsmennirnir, stuðningsmennirnir og allir í kringum Hannover eru í sjokki,“ segir í yfirlýsingu frá Hannover.

„Niklas - við viljum ekki og við munum aldrei gleyma þér.“

Leikmaðurinn hafði ekki spilað sinn fyrsta leik fyrir aðallið Hannover, en hann hafði tvisvar verið ónotaður varamaður á þessu tímabili.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner