02.05.18 - 20:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Liverpool gerði nóg í Róm
Úrslitaleikurinn í Kænugarði 26. maí - Liverpool gegn Real Madrid

Liverpool spilar við Real Madrid í úrslitaleiknum.

Mynd: Getty Images

Úr leiknum í kvöld.

Roma 4 - 2 Liverpool (Samanlagt 6-7)
0-1 Sadio Mane (\'9 )
1-1 James Milner (\'15 , sjálfsmark)
1-2 Georginio Wijnaldum (\'25 )
2-2 Edin Dzeko (\'52 )
3-2 Radja Nainggolan (\'86 )
4-2 Radja Nainggolan (\'90 , víti)
0-1 Sadio Mane (\'9 )
1-1 James Milner (\'15 , sjálfsmark)
1-2 Georginio Wijnaldum (\'25 )
2-2 Edin Dzeko (\'52 )
3-2 Radja Nainggolan (\'86 )
4-2 Radja Nainggolan (\'90 , víti)
Liverpool er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2018! Eftir að hafa ekki tekið þátt í Meistaradeildinni í fyrra, þá er liðið komið í úrslitaleikinn núna, í Kænugarði 26. maí.
Þetta verður fyrsti úrslitaleikur Liverpool frá 2007 en þá tapaði liðið fyrir AC Milan. Tveimur árum áður vann liðið Milan í einum eftirminnilegasta úrslitaleik síðari ár.
Þann 26. maí verður mótherji Liverpool hins vegar Real Madrid.
Liverpool tapaði en gerði nóg
Liverpool mætti Roma í seinni leik liðanna í kvöld og var varnarleikurinn ekki í hávegum hafður. Sadio Mane skoraði fyrsta markið eftir níundu mínútu og kom Liverpool yfir. Roma jafnaði nokkrum mínútum síðar þegar James Milner, stoðsendingarkóngur Meistaradeildarinnar í vetur, skoraði sjálfsmark.
Liverpool komst aftur yfir á 25. mínútu þegar Georginio Wijnaldum skoraði. Liverpool var þarna komið 7-3 yfir í einvíginu eftir að hafa unnið fyrri leikinn á Anfield 5-2.
Liverpool leiddi 2-1 í hálfleik en í seinni hálfleiknum Roma í. Edin Dzeko jafnaði í 2-2 á 52. mínútu en næsta mark kom ekki fyrr en á 86. mínútu. Það skoraði Radja Nainggolan. Á 90. mínútu fékk Roma vítaspyrnu og skoraði Nainggolan úr henni. Það var hins vegar of lítið, of seint fyrir Rómverjanna. Lokatölur 4-2.
Liverpool gerði nóg og er komið í úrslitaleikinn. Frábær árangur hjá Jurgen Klopp og hans mönnum.

Svakalegt kvöld! Hvort liðið mun svo hampa bikarnum í Kænugarði 26. maí? 🇺🇦🏆
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) May 2, 2018
🤩 A mouth-watering 2018 UEFA Champions League final! 🤩
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) May 2, 2018
Real Madrid or Liverpool?#UCLfinal #UCL pic.twitter.com/wQsKkUHK9H

Úr leiknum í kvöld.

Mynd: Getty Images