„Þetta var mjög ljótt en skemmtilegt," sagði Guðmundur Atli Steinþórsson framherji HK eftir 2-1 sigur á Fram í kvöld.
Guðmundur Atli skoraði bæði mörk HK en sigurmarkið kom þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
„Mínútu áður var ég búinn að klúðra deddara þannig að ég skuldaði þetta. Ég hélt að ég væri búinn að klúðra þessu en síðan kom ein skyndisókn og við tókum þetta."
Framarar sóttu meira í leiknum en HK-ingar náðu í stigin þrjú.
„Þeir voru betri, ég ætla ekkert að taka það af þeim, en við stálum þessu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir