fim 02. júlí 2015 14:16
Magnús Már Einarsson
Kaiserslautern með nýtt tilboð í Jón Daða
Jón Daði í leiknum gegn Tékkum á dögunum.
Jón Daði í leiknum gegn Tékkum á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þýska félagið Kaiserslautern hefur lagt fram nýtt tilboð í Jón Daða Böðvarsson leikmann Viking en Aftenbladet greinir frá þessu.

Kaiserslautern bauð á bilinu tvær til þrjár milljónir norskar krónur (33-50 milljónir íslenskar) í Jón Daða fyrr í vikunni en því tilboði var hafnað.

Þýska félagið hefur nú komið með betra tilboð í Jón Daða og Viking er að skoða það tilboð. Auk þess að bjóða hærri upphæð núna þá hefur Kaiserslautern boðið Viking að fá prósentu af næstu sölu.

Jón Daði verður samningslaus um áramót og því verður Viking að selja hann núna til að eiga ekki á hættu á að missa hann frítt.

Kaiserslautern endaði í fjórða sæti í þýsku B-deildinni á síðasta tímabili en hinn 23 ára gamli Jón Daði vill sjálfur ganga til liðs við félagið.

„Það yrði frábært skref fyrir mig að fara til Þýskalands. Ég hef alltaf verið hrifinn af þýska boltanum. Kaiserslautern er stórt félag og þýska B-deildin er mjög sterk deild og þeir hafa alltaf sett stefnuna að komast aftur í Bundesliguna. Það er einn af mínum draumum að spila í Þýskalandi," sagði Jón Daði við Fótbolta.net fyrr í vikunni.
Athugasemdir
banner