Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. júlí 2015 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Luiz Adriano til Milan (Staðfest)
Mynd: Getty Images
AC Milan er búið að staðfesta kaup á brasilíska sóknarmanninum Luiz Adriano frá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk.

Adriano er búinn að skrifa undir fimm ára samning við félagið og kostaði 8 milljónir evra.

„AC Milan er búið að festa kaup á Luiz Adriano frá Shakhtar Donetsk og er hann búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir til 30. júní 2020," stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

Adriano, sem er 28 ára gamall, skoraði í öðrum hverjum deildarleik fyrir Shakhtar og á fjóra landsleiki að baki síðan 2014. Arsenal og Liverpool eru meðal liða sem voru sterklega orðuð við leikmanninn í vetrarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner