„Það má segja að Chris Coleman hafi unnið þennan leik fyrir Wales með taktískri snilld," sagði Haukur Ingi Guðnason í EM svítunni á Síminn Sport í gær.
Haukur Ingi var þar ásamt Þórði Guðjónssyni fyrrverandi liðsfélaga sínum í íslenska landsliðinu og Þorsteini Joð þáttarstjórnanda.
Umræðan var 3-1 sigur Wales á Belgíu í 8 liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi í gærkvöldi.
Hér að ofan má sjá spjallið um leikinn í gærkvöldi sem og stuttar klippur úr leiknum.
Athugasemdir