Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 02. júlí 2016 07:00
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þrír í banni í leik Wales og Portúgal
Mynd: Getty Images
Eftir úrslit kvöldsins á EM er ljós að Wales og Portúgal mætast í undanúrslitum á EM. Þrír leikmenn verða í banni í leiknum.

Walesverjar verða með tvo leikmenn í banni en Portúgalir verða án eins leikmanns.

Þeir Ben Davies og Aron Ramsey eru í banni í liði Wales en hjá Portúgal er það William Carvalho sem er í banni.

Leikurinn fer fram í Lyon 6. júlí.
Athugasemdir
banner
banner
banner