Alex Oxlade-Chamberlain var vitaskuld ánægður með sigur Arsenal á Chelsea í Samfélagsskyldinum í dag.
Hann skoraði eina mark leiksins með frábæru skoti í fyrri hálfleik.
Hann skoraði eina mark leiksins með frábæru skoti í fyrri hálfleik.
„Það var mjög gott að koma á Wembley og vinna, við viljum halda áfram að vinna á Wembley."
„Við erum hæst ánægðir með annan titill og fyrir mig persónulega, er ég glaður að ég hafi skorað sigurmarkið. Ég held við höfum ekki tapað á Wembley, vonandi heldur það áfram."
„Þetta var stór leikur fyrir okkur og við vildum senda skilaboð fyrir þjálfarann okkar og stuðningsmenn. Ég vil skora fleiri mörk á þessari leiktíð, það er mitt markmið og auðvitað er ég glaður með að hafa skorað í dag."
Athugasemdir