Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. ágúst 2015 11:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Frank Lampard ánægður með að spila sinn fyrsta leik
Frank Lampard hefur loksins spilað leik með New York City
Frank Lampard hefur loksins spilað leik með New York City
Mynd: Getty Images
Frank Lampard spilaði loksins sinn fyrsta leik fyrir New York City er liðið mætti Montreal Impact í gær.

Þessi Chelsea gosögn var ánægður með að loksins spila. City liðið var 2-1 undir þegar Lampard kom inná en leikurinn endaði 3-2 fyrir Montreal.

„Það var frábært að fá að hlaupa á vellinum og sjá aðdáendurna en þetta voru auðvitað ekki fullkomnar aðstæður."

„Ég hefði mikið frekar viljað koma inná þegar liðið er yfir í leik en við vorum að elta."

„Mig hlakkar til að komast í betra form þar sem ég hef ekki æft mikið," sagði Lampard.

Tapið var annað tap liðsins í síðustu þrem leikjum og situr það því í sjöunda sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir efsta liðinu, DC United.

Athugasemdir
banner
banner