Jose Mourinho, þjálfari Chelsea var ekki sáttur eftir 1-0 tap sinna manna gegn Arsenal í Samfélagsskyldinum í dag.
Mourinho segir sitt lið hafa verið betra en að Arsenal hafði varist vel.
Mourinho segir sitt lið hafa verið betra en að Arsenal hafði varist vel.
„Við vorum betra liðið. Við stjórnuðum leiknum og vorum meira með boltann."
„Þegar liðið lendir undir þá er erfiðara að snúa leiknum við. Arsenal varðist með tíu leikmönnum og voru skipulagðir, hamingjuóskir til þeirra."
„Þeir fengu nokkur færi með skyndisóknum en okkar færi komu eftir góðan fótbolta," sagði Mourinho.
Athugasemdir