sun 02. ágúst 2015 21:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Vináttuleikir: Fiorentina vann Barcelona
 Federico Bernardeschi fagnar í kvöld.
Federico Bernardeschi fagnar í kvöld.
Mynd: Getty Images
Barcelona og Fiorentina mættus í vináttuleik í kvöld.

Ítalska liðið byrjaði leikinn með látum því Federico Bernardeschi var búinn að koma Fiorentina yfir eftir aðeins fimm mínútúr.

Hann var svo aftur á ferðinni eftir 12 mínútur og staðan orðin ansi góð fyrir Fiorentina.

Barcelona náði hins vegar að minnka muninn skömmu síðar þegar Luis Suarez skoraði en það dugði ekki til og sterkur 2-1 sigur Fiorentina staðreynd.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner