sun 02. ágúst 2015 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
West Brom vill fá David Marshall
David Marshall
David Marshall
Mynd: Getty Images
Russell Slade, stjóri Cardiff, hefur staðfest það að West Brom hafi sýnt áhuga á David Marshall, markverði liðsins.

Hinn þrítugi Marshall, sem er skoskur landsliðsmaður, á að baki meira en 200 leiki fyrir Cardiff.

"Það er skýr áhugi þar, en ég veit ekki öll smáatriðin. Formaður okkar mun sjá um það," sagði Slade.

Slade vill hins vegar alls ekki missa Marshall frá félaginu.

"Hann er mikilvægur hluti af því sem við höfum reynt að gera hér og hann er mjög hæfileikaríkur."

"Við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner