þri 02. ágúst 2016 18:00
Aðsendir pistlar
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Geðhvörfin bundu enda á drauma mína um atvinnumennsku
Aðsendir pistlar
Aðsendir pistlar
Kristinn Rúnar Kristinsson.
Kristinn Rúnar Kristinsson.
Mynd: Úr einkasafni
Markakóngur á Shellmótinu 1998.
Markakóngur á Shellmótinu 1998.
Mynd: Úr einkasafni
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Ég hef ákveðið að skrifa um minn íþróttaferil því ég finn að það er að verða vitundarvakning um andleg veikindi í landinu og fleiri eru að stíga fram sem mér finnst algjörlega frábært. Ég vona að enn fleiri komi fram í kjölfarið. Margir hafa eflaust spurt sig og aðra af hverju hinir og þessir náðu ekki lengra í íþróttinni sinni. Ég er nokkuð viss um andleg veikindi spili þar oft á tíðum stóra rullu. Það var allavega þannig hjá mér. Það er hægt að gera svo miklu miklu betur innan íþróttahreyfingarinnar að vinna með fólki sem finnur til andlegra veikinda sem byrjar oft þegar það er á unglingsaldri. Það er viðkvæmur aldur og ég upplifði ekki nægilega þekkingu í þessum efnum frá mínum liðum þegar ég var að byrja að veikjast og missa mína getu bæði í fótbolta og körfubolta.

Íþróttasagan mín
Ég var alltaf í íþróttum sem barn, aðallega í fótbolta og körfubolta en prufaði líka handboltann. Ég átti tuttugu bolta heima hjá mér og vitandi af aðeins einum bolta í leikskólanum mínum sem átti að vera fyrir alla krakkana var mér kvöð og pína daglega. Það endaði með því að móðir mín leyfði mér að hætta á leikskóla þriggja og hálfs ár og ég fékk að vera alsæll einn heima með mína bolta að æfa mig. Ég byrjaði að æfa fótbolta fimm ára gamall með Breiðabliki og það gekk vel. Ég þótti efnilegur og 89´ árgangurinn hjá okkur var góður.

Hátindurinn á mínum knattspyrnuferli var að verða markakóngur á Shellmótinu 98´ með 19 mörk á yngra ári og að vera valinn í landslið mótsins árið eftir á eldra ári. Ógleymanlegur tími og þarna tíu ára gamall vissi ég að það var búist við miklu af mér og ég gerði það sjálfur líka. Draumarnir voru orðnir talsverðir og ég man að á þessum tíma var ég farinn í frítíma mínum að æfa mig að skrifa eiginhandaráritunina mína og þegar ég var einn að æfa mig úti á velli fagnaði ég mörkunum alltaf eins og ég væri á Old Trafford með fleiri tugi þúsunda áhorfenda að horfa á mig. Ég var staðráðinn í að verða atvinnumaður í fótbolta.

Ég byrjaði í körfunni níu ára gamall með Blikunum líka, og það var sama og með fótboltann. Ég þótti efnilegur og 89´ árgangurinn okkar var góður. Við náðum þó aldrei að skáka Njarðvíkingum sem töpuðu einungis tveimur keppnisleikjum á Íslandi alla yngri flokkana. Ég held að ég sé ekki að halla á neinn þegar ég segi að ég hafi verið topp 3 leikmaður fæddra 1989 hér á landi á meðan ég var níu til tólf ára gamall. Það fór hins vegar að síga á ógæfu hliðarnar sumarið 2001.

Geðhvörfin byrja að láta á sér kræla
Ég byrjaði að finna fyrir ójafnvægi sumarið 2001 og á þremur mánuðum fór ég úr 50 kg í 62 kg. Yfirburðir mínir í íþróttum ef svo má segja hurfu og ég varð að meðalmanni á nánast einu augabragði. Veturinn á eftir gekk samt þokkalega, þunglyndið var ekki byrjað af fullu. Ég fór í markið í fótboltanum, hélt þar með mínu sæti í A-liðinu og í körfunni færði ég mig bara aftar á völlinn og setti þristana niður. Vörnin hjá mér var samt ekki upp á marga fiska sökum þyngsla. Haustið 2002, í byrjun áttunda bekkjar fór ég í gegnum mjög erfið þunglyndistímabil, sem á rætur sínar að rekja til þess að árið áður þyngdist ég um þessi tólf kíló sem var gríðarlegt áfall, þetta voru líklega erfiðustu tímar lífs míns. Geðsjúkdómar byrja oft á tíðum með einhvers konar áfalli í lífi fólks, þetta var það í mínu tilfelli. Í unglingadeildinni datt ég sennilega niður 15 sinnum í mjög djúpar þunglyndislotur og hver niðursveifla varði í tvær vikur í senn. Ég þroskaðist mjög lítið líkamlega miðað við jafnaldra mína á þessum tíma og 17 ára gamall sem dæmi þá var ég 175 cm en 19 ára var ég orðinn 186 cm.

Ég hef oft hugsað út í það hvað það voru lítil úrræði til staðar til að hjálpa manni í íþróttunum á þessum tíma. Eins með skólana og ég veit að það er ekkert breytt í dag. Ég er hins vegar með fyrirlestra þar um mín veikindi til að reyna að breyta því. Þjálfararnir töluðu mjög lítið við mig um mín veikindi, lítið var um góð ráð eða að menn leituðu faglegrar aðstoðar. Þeir höfðu líklega hvorki færni né þekkingu til þess þó þeir hafi verið færir þjálfarar að öðru leyti, bæði fótbolta og körfuboltaþjálfararnir mínir. Ef ég hugsa út í það þá hefði ég þurft þjálfara sem væri mjög fær í svona málum því ég var ekki opinn með þetta, vildi helst ekki tala um þetta og skammaðist mín. Skammaðist mín líka hvað ég var orðinn slakur í boltanum, þetta voru mjög erfiðir tímar að ganga í gegnum og ég hugsa ennþá reglulega út í það ef þetta og ef hitt. Ef ég væri tólf ára gamall núna og vissi það sem ég veit núna, ég myndi gera svo mikið fyrir það að þið trúið því ekki. Ég hætti í fótboltanum 15 ára gamall og í körfunni 19 ára þó það hafi komið nokkur “comeback” í 2. deildina sem var aðallega bara til að sprikla aðeins og upp á félagsskapinn.

Tilraun til endurkomu í skugga veikinda
Sumarið 2009 greindist ég svo með geðhvörf, tvítugur að aldri en það gerist þegar þú hefur bæði gengið í gegnum þunglyndis- og maníutímabil. Þarna var s.s. fyrsta manían mín að byrja og guð minn almáttugur hvað ég ætlaði að sigra heiminn. Nú yrði ég sko loksins atvinnumaður! Ég vissi að ég þyrfti að byrja “rólega” og það var með Blikunum sem urðu bikarmeistarar það sumarið og ég ekki búinn að spila fótbolta í einhver fimm ár þarna. Ég hringdi í þjálfara Breiðabliks eftir 0:0 jafnteflisleik gegn Fjölni sem var einn af lágpunktur sumarsins hjá þeim. Ég hringdi í hann daginn eftir og sagði: “Blessaður, Kristinn Rúnar hérna. Markakóngur á Shellmótinu 98´. Þetta var ansi dapurt hjá okkur í gær, fólk var nánast með tárin í augunum eftir leikinn. Ég var að spá hvort ég mætti ekki kíkja á æfingu, það vantar augljóslega markaskorara”. Sannfæringarkrafturinn þarna (yfirleitt mun meiri í maníu) gerði það að verkum að hann var spenntur að fá mig á æfingu og sem gamall Bliki þekkti ég marga stráka í liðinu. Þeir voru ánægðir að fá einn hressan í klefann eins og þeir orðuðu það. Ég ætlaði mér að skora allavega tíu mörk í þeim tólf leikjum sem voru eftir í deildinni og fara svo í ensku úrvalsdeildina um haustið og auðvitað að spila með Manchester United við hlið Wayne Rooney. Svona getur manían verið skæð, það getur endað mjög illa. Ég mætti á æfingu og var kynntur fyrir hópnum og var svo beðinn um að kaupa mér betri skó fyrir æfingu morgundagsins. Stjórnarmaður hringdi svo í pabba um kvöldið, en pabbi er heiðursbliki og þekkir því mjög vel til klúbbsins. Stjórnarmaðurinn sagði að það væri eitthvað bogið í gangi og menn gætu ekki labbað bara svona inn í liðið. Við pabbi fórum svo á fund hjá honum daginn eftir og mér var tjáð að ég þyrfti að vinna mig upp í liðið og byrja á því að mæta á æfingar hjá varaliðinu, Augnabliki, í 3. deildinni. Skellur!

Nokkrum dögum síðar var ég svo búinn að keyra mig algjörlega út og lagður inn á geðdeild. Þessu ævintýri var lokið að sinni. Það sem mér finnst leiðinlegast við þessa lífsreynslu var hvað þjálfarinn og stjórnarmaðurinn litu öðruvísi á mig þegar þeir hittu mig nokkrum mánuðum síðar, svokölluðu hornauga. Ég get talið svoleiðis viðbrögð og framkomu frá fólki gagnvart mér eftir að ég hef verið í maníu á fingrum annarrar handar og að fá svoleiðis frá svo háttsettum mönnum innan íþróttafélags í efstu deild í knattspyrnu segir mér að þeir voru ekki mikið að hjálpa mönnum sem áttu við andleg veikindi að etja. Ég hvet því íþróttafélögin til að stíga upp, auka við fræðsluna um þessi málefni, vera meira til staðar fyrir iðkendurna og benda þeim á þau úrræði sem eru í boði. Það eru samtök til staðar sem eru til í að hjálpa sé til þeirra leitað en það sem skiptir mestu máli í grunninn að mínu mati er að ræða saman, sýna skilning og vera til staðar fyrir iðkendurna, sama á hvaða aldri þau eru.

Við erum að missa alltof mikinn efnivið úr íþróttum vegna andlegra veikinda
Ég sá viðtal við landsliðsþjálfarann okkar í knattspyrnu karla fyrir nokkrum dögum þar sem hann var að tala um hvað margir strákar sem hann þjálfaði hefðu ekki verið nein gríðarleg efni en enduðu á því að verða góðir fótboltamenn og svo á hinn bóginn hvað það voru margir efnilegir fótboltamenn sem varð svo ekkert úr. Það er nokkuð ljóst tel ég að þarna voru margir sem áttu við andleg veikindi að etja en fengu ekki þá hjálp, fræðslu, umhyggju og væntumþykju sem þeir þurftu á að halda á erfiðum tímum og flosnuðu upp úr boltanum. Það er nánast þannig að annar hver maður á landinu er að eiga við kvíða eða þunglyndi og svo eru sumir með stærri geðsjúkdóma á borð við geðhvörf eða geðklofa. Öll förum við upp og niður, bara mismikið og í mínu tilfelli er það í líkingu við rússíbana. Ég vona að það byrji bolti að rúlla núna og við tökum okkur öll saman um að koma af stað vitundarvakningu um andleg veikindi í íþróttum og landinu öllu, útrýmum fordómum og aukum fræðslu sem stuðlar þá að betri leikmönnum í framtíðinni og betri félagsliðum.
- Kristinn Rúnar Kristinsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner