Heimild: Goal
Greint var frá því í gær að einn hraðasti kantmaður knattspyrnuheimsins, Jonathan Biabiany, væri búinn að skrifa undir samning við AC Milan.
Milan var búið að birta mynd af leikmanninum í treyju félagsins á vefsíðu sinni og var staðfest kaupverð 4 milljónir evra auk varnarmannsins Cristian Zaccardo sem átti að fara til Parma í staðinn.
Milan var búið að birta mynd af leikmanninum í treyju félagsins á vefsíðu sinni og var staðfest kaupverð 4 milljónir evra auk varnarmannsins Cristian Zaccardo sem átti að fara til Parma í staðinn.
Zaccardo neitaði þó að skrifa undir samning við Parma, sem er hans gamla félag, og því var þetta annar félagsskiptaglugginn í röð sem Milan mistekst að landa Biabiany.
Athugasemdir