Tom Cleverley, miðjumaður Manchester United, gæti farið á láni til Aston Villa eftir allt saman.
Manchester United samþykkti í síðustu viku níu milljóna punda tilboð frá Aston Villa í Cleverley en ekkert varð af samningum út af launakröfum leikmannsins.
Manchester United samþykkti í síðustu viku níu milljóna punda tilboð frá Aston Villa í Cleverley en ekkert varð af samningum út af launakröfum leikmannsins.
Í gærkvöldi virtist Cleverley vera á leið til Everton en ekkert varð af samningum þar heldur.
Villa óskaði hins vegar eftir að fá Cleverley á láni rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23:00.
Samkvæmt frétt Sky bíða forráðamenn Aston Villa nú eftir ákvörðun frá ensku úrvalsdeildinni hvort lánssamningurinn fái að fara í gegn eða ekki.
Athugasemdir