Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. september 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Dani Alves fer frá Barcelona næsta sumar
Dani Alves.
Dani Alves.
Mynd: Getty Images
Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves mun fara frá Barcelona þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

Alves var orðaður við Inter og fleiri félög í sumar en á endanum ákvað hann að vera áfram hjá Börsungum.

,,Við erum mjög ánægðir með að Dani Alves verði áfram hér. Báðir aðilar hafa samþykkt að samningi hans muni ljúka árið 2015," sagði Andoni Zubizarreta yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona.

Ljóst er að mörg félög munu reyna að fá hinn 31 árs gamla Alves í sínar raðir næsta sumar.

Spænskir fjölmiðlar eru strax farnir að velta fyrir sér eftirmanni Alves hjá Barcelona en Juan Cuadrado hjá Fiorentina hefur lengi verið orðaður við félagið auk þess sem Douglas hjá Sao Paulo er nefndur til sögunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner