Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. september 2014 22:00
Alexander Freyr Tamimi
Kyle Walker fór í aðgerð - Óvíst hvenær hann snýr aftur
Kyle Walker fór í aðgerð.
Kyle Walker fór í aðgerð.
Mynd: Getty Images
Kyle Walker, varnarmaður Tottenham, hefur þurft að gangast undir aðgerð á neðri magavöðvum og er ekki vitað hvenær hann snýr aftur.

Enski landsliðsbakvörðurinn hefur ekki spilað síðan í mars og er ekki vitað hvenær hann mun snúa aftur.

Í yfirlýsingu frá Tottenham kom fram að ákveðið var að reyna að binda enda á vandamál hans með aðgerð, en á endanum var ákveðið að senda hann undir hnífinn.

Knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino sagði: ,,Kyle er góður suma daga og aðra daga líður honum illa."

,,Við teljum að hann gæti jafnað sig fljótt en við verðum að flýta okkur hægt, því þessi meiðsli hafa hrjáð hann í fimm mánuði."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner