Vegard Forren, varnarmaður Molde, hefur skotið á Wayne Rooney fyrir vináttuleikinn gegn Englendingum annað kvöld.
,,Rooney lítur út fyrir að vera svolítið feitur," sagði Forren í viðtali við TV2.
,,Það eru auðvitað góðir leikmenn í enska liðinu og margir þeirra eru í góðu standi eftir þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni en við erum spenntir fyrir þessu."

Forren er 26 ára gamall en hann gekk í raðir Southampton í fyrra. Forren spilaði hins vegar ekki leik þar og endaði á að fara aftur heim til Molde nokkrum mánuðum síðar.
Athugasemdir