Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. september 2014 14:00
Magnús Már Einarsson
Oscar Garcia tekur við Watford (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Oscar Garcia hefur verið ráðinn stjóri Watford í Championship deildinni.

Watford er í öðru sæti deildarinnar en Beppe Sannino ákvað þrátt fyrir það að hætta störfum vegna óánægju leikmanna.

Hinn 41 árs gamli Garcia fór með Brighton í úrslitakeppni Championship deildarinnar á síðasta tímabili.

Garcia tók við Maccabi Tel Aviv í Ísrael í júní síðastliðnum en hætti með liðið á dögunum vegna stríðsástands þar í landi.
Athugasemdir
banner
banner