Manchester United hefur gengið frá kaupunum á ungum varnarmanni að nafni Regan Poole og kemur hann til félagsins frá Newport County fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 17 ára gamli miðvörður varð yngsti leikmaðurinn í sögu Newport þegar hann mætti Shrewsbury Town í september í fyrra en þá var hann 16 ára og 94 daga gamall.
Newport spilar í fjórðu efstu deild Englands og er ljóst að Poole, sem á leiki að baki með yngri landsliðum Wales, er hugsaður til framtíðar.

Poole var ekki eini leikmaðurinn sem United fékk til sín á lokadegi félagaskiptagluggans í gær. Kaupin á honum falla í skuggann af kaupunum á Anthony Martial frá Monaco.
Athugasemdir