Það voru fjórir leikir að klárast í 2. deild karla.
Magni vann 3-0 sigur á Fjarðabyggð og þeir eru núna í öðru sæti með fjögurra stiga forskot á Víði, liðið sem kemur næst.
Magni vann 3-0 sigur á Fjarðabyggð og þeir eru núna í öðru sæti með fjögurra stiga forskot á Víði, liðið sem kemur næst.
Víðismenn máttu sætta sig við 4-2 tap gegn Tindastóli, en þetta tap gæti reynst þeim dýrkeypt. Með sigri hefðu þeir verið einu stigi á eftir Magna, en Grenvíkingar eru í býsna góðum málum núna.
Tindastóll kom sér fjórum stigum frá fallpakkanum með sigrinum.
Í þessum umrædda fallpakka eru Vestri, KV, Höttur og Fjarðabyggð. Þessi lið hafa öll 21 stig þegar þrír leikir eru eftir. Sindri er langneðsta liðið í deildinni með aðeins níu stig þegar 19 leikir eru búnir.
Hér að neðan eru úrslit og markaskorara dagsins.
Magni 3 - 0 Fjarðabyggð
1-0 Pétur Heiðar Kristjánsson ('22)
2-0 Pétur Heiðar Kristjánsson ('43)
3-0 Fannar Freyr Gíslason ('84)
Tindastóll 4 - 2 Víðir
1-0 Greg Conrad ('4)
1-1 Ari Steinn Guðmundsson ('52)
2-1 Greg Conrad ('61)
3-1 Jack Clancy ('66)
4-1 Ragnar Þór Gunnarsson ('67)
4-2 Patrik Snær Atlason ('90)
Afturelding 6 - 2 Höttur
1-0 Haukur Lárusson ('11)
2-0 Ágúst Leó Björnsson ('18)
3-0 Ágúst Leó Björnsson ('36)
4-0 Magnús Már Einarsson ('45)
5-0 Hafliði Sigurðarson ('60)
5-1 Markaskorara vantar ('70)
5-2 Brynjar Árnason ('75)
6-2 Magnús Már Einarsson ('90)
Sindri 4 - 4 KV
0-1 Jón Konráð Guðbergsson ('1)
0-2 Einar Már Þórisson ('7)
1-2 Akil De Freitas ('42)
1-3 Jón Konráð Guðbergsson ('44)
2-3 Sævar Ingi Árnason ('67)
2-4 Jón Marvin Gunnarsson ('69, sjálfsmark)
3-4 Ingvi Þór Sigurðsson ('82)
4-4 Hákon Logi Stefánsson ('93)
Sjá einnig:
2. deild: Njarðvík tók stórt skref upp í Inkasso-deildina
Markaskorarar af urslit.net



