Heimild: Guardian
Marouane Fellaini nálgast óðum endurkomu sína úr meiðslum og eru líkur á að hann muni koma við sögu þegar Manchester United mætir Everton um helgina.
Belginn snéri aftur til æfinga í byrjun vikunar, en hann hefur verið frá síðan í ágúst vegna ökklameiðsla.
Ander Herrera er með brákað rifbein og er því ljóst að United veitir ekki að liðsstyrk á miðvallarsvæðinu.
Þá er Phil Jones byrjaður að æfa sem og Michael Carrick.
Athugasemdir