Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. október 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikmenn semja við kvennalið ÍBV
Frá undirskriftinni.
Frá undirskriftinni.
Mynd: Eyjafréttir - Júlíus G. Ingason
Um helgina skrifuðu fjórar heimastúlkur undir áframhaldandi samning við Knattspyrnudeild ÍBV.

Þetta eru þær Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir, Sabrína Lind Adolfsdóttir og Guðrún Bára Magnúsdóttir.

,,Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir sveitarfélagið og ÍBV þar sem þetta eru uppaldir leikmenn sem hafa staðið sig vel fyrir félagið," segir í tilkynningu félagsins.

Áður hafði ÍBV gengið frá samningum við Shaneka Gordon og Natasha Anasi um að spila áfram með liðinu.

Ian Jeffs þjálfar liðið á næstu leiktíð og tekur við af Jón Ólafi Daníelssyni sem verður aðstoðarþjálfari.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner