Ívar Örn Jónsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Víking.
Ívar er að ljúka sínu öðru tímabili með Víkingi en hann var áður á mála hjá HK.
Fyrri samningur Ívars átti að renna út um áramótin en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Víkingi.
Ívar er að ljúka sínu öðru tímabili með Víkingi en hann var áður á mála hjá HK.
Fyrri samningur Ívars átti að renna út um áramótin en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Víkingi.
Ívar hefur skorað fjögur mörk í tuttugu leikjum með Víkingi í sumar en hann fékk viðurnefnið ,,aukaspyrnu Ívar" eftir að hafa skorað glæsileg mörk beint úr aukaspyrnum fyrr á tímabilinu.
Ívar byrjaði að spila með meistaraflokki hjá HK árið 2011 en hann á einnig leiki að baki með U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir