Heimild: Telegraph
Enskir fjölmiðlar greina frá því að forráðamenn Stoke City muni fljótlega setjast niður með umboðsmanni Peter Crouch og semja um nýjan samning.
Núgildandi samningur þessa 33 ára gamla framherja rennur út næsta sumar, en hann gekk í raðir Stoke árið 2011 fyrir 10 milljónir punda.
Hann hefur til þessa skorað þrjú mörk á tímabilinu og spilað vel undir stjórn Mark Hughes.
QPR reyndi að kaupa Crouch í sumar og er talið að félagið muni reyna að fá hann aftur í janúarglugganum. Forráðamenn Stoke vilja hinsvegar halda honum hjá félaginu og vilja því ganga frá samningnum sem fyrst.
Athugasemdir