Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 02. desember 2015 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Klopp: Hurðin er alltaf opin fyrir Gerrard
Steven Gerrard og Daniel Sturridge á æfingu Liverpool.
Steven Gerrard og Daniel Sturridge á æfingu Liverpool.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, segir að Steven Gerrard sé ávallt velkominn á Anfield.

Liverpool goðsögnin, Gerrard, hefur verið að æfa með liðinu til að halda sér í formi og var Klopp mjög ánægður að fá hann til æfinga.

Klopp hefur verið ákafur í að taka fram að Gerrard muni ekki spila með liðinu en segir hann þó geta haft jákvæð áhrif á liðið.

„Hann mun ekki spila, hann er í góðu formi en hann mun ekki spila," sagði Klopp.

„Hurðin er alltaf opin ef þú ert Steven Gerrard í Liverpool. Hann var mjög mikilvægur leikmaður og er enn, því allir brostu þegar þeir sáu Stevie, það er gott að hafa hann hér."



Athugasemdir
banner
banner
banner