fös 02. desember 2016 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Grindavíkur tryggði brons í Afríkubikarnum
Linda Eshun í leik með Grindavík í sumar
Linda Eshun í leik með Grindavík í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gana 1 - 0 Suður-Afríka
1-0 Linda Eshun ('49 )

Linda Es­hun, leikmaður Grinda­vík­ur, skoraði sig­ur­mark Gana í dag er liðið sigraði Suður-Afr­íku 1-0, í úr­slita­leikn­um um bronsverðlaun­in í Afr­íku­bik­ar kvenna.

Es­hun skoraði mark á 49. mín­útu leiks­ins og það reyndist nóg til þess að tryggja sigur í leiknum og bronsverðlaunin um leið.

Eshun spilaði vel fyrir Grindavík í sumar, en hún gerði sex mörk í 14 leikjum í 1. deild kvenna. Hún spilaði áður með Víkingi Ólafsvík í eitt tímabil.

Hún er ekki eini leikmaður Gana sem spilar hér á landi því Janet Egy­ir og Samira Su­lem­an, leikmenn Víkings Ó. spila einnig með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner