Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 02. desember 2017 14:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benitez: Erum í úrvalsdeildinni, það er vandamálið
Mynd: Getty Images
Rafa Benitez var svekktur eftir 3-1 tap gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. „Við gerðum mistök gegn góðum leikmönnum sem refsa þér," sagði hann eftir leik.

„Við vorum inn í leiknum, þú veist aldrei hvað getur gerst í stöðunni 1-1, 2-1. Topplið spilaði gegn liði sem lagði allt í sölurnar."

Eden Hazard var maður leiksins. Hann skoraði tvö og reyndist varnarmönnum Newcastle erfiður.

„Við vissum alveg um gæði Hazard. Þegar hann fær boltann getur hann breytt leikjum og skipt sköpum. Við stóðum okkur lengi vel, en mistökin sem við gerðum voru dýrkeypt."

Newcastle hefur ekki unnið í sex leikjum í röð.

„Við erum í úrvalsdeildinni, það er vandamálið. Við reynum að gera okkar besta og sjáum hvað gerist í janúar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner