Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 02. desember 2017 15:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Berglind allt í öllu í sigri Verona
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Berglind Björg Þorvaldsdóttir var allt í öllu þegar Verona lagði Empoli í úrvalsdeild kvenna á Ítalíu í dag.

Verona hafði ekki unnið í fimm leikjum í röð fyrir leikinn í dag, en Berglind sá til þess að Verona komst aftur á sigurbraut. Hún skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri.

Arna Sif Ásgrímsdóttir og Shameeka Fishley, fyrrverandi leikmaður Sindra, spiluðu líka með Verona í leiknum.

Verona er nú í áttunda sæti af 12 liðum. Fiorentina með Sigrún Ellu Einarsdóttur innanborðs er í fimmta sætinu. Fiorentina burstaði Fimauto Valpolicella í dag, en Sigrún var á meðal varamanna.

Verona 2 - 1 Empoli
Mörk Verona: Berglind Björg Þorvaldsdóttir 2

Fiorentina 4 - 0 Fimauto Valpolicella
Athugasemdir
banner
banner
banner