Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. desember 2017 20:25
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho: Ég elskaði að sjá hvernig liðið mitt spilaði og barðist
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho og lærisveinar hans í Manchester United heimsóttu Arsenal í kvöld í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, gestirnir frá Manchester sigruðu 1-3.

Mourinho var skiljanlega gríðarlega sáttur með stigin þrjú.

„Ég elskaði að sjá það hvernig liðið mitt spilaði og barðist. Arsenal átti fína kafla þar sem þeir gerðu okkur erfitt fyrir. En ég verð að segja það að leikmennirnir mínir áttu sigurinn skilið."

„Ég kann ekki svo mörg orð í ensku en ótrúlegt, stórkostlegt, frábært. Þeir áttu stigin þrjú skilið," sagði Mourinho.

Þessi sigurleikur Manchester United verður að teljast góð upphitun fyrir næsta deildarleik þeirra, Manchester City heimsækir þá á Old Trafford næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner