Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 02. desember 2017 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland í dag - Bæði Alfreð og Bayern í beinni
Alfreð hefur verið að spila vel með Augsburg.
Alfreð hefur verið að spila vel með Augsburg.
Mynd: Getty Images
Vonandi fáum við skemmtilegan laugardag í þýska boltanum í dag. Það eru sex leikir framundan.

Alfreð Finnbogason skoraði og lagði upp fyrir Augsburg í síðustu umferð og er með sex mörk og tvær stoðsendingar eftir 13 umferðir. Hann verður í eldlínunni þegar Augsburg heimsækir Mainz í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í dag.

Á sama tíma spilar topplið og stórveldi Bayern München við Hannover, en sá leikur er líka í beinni.

Dortmund hefur gengið mjög illa að undanförnu. Liðið sækir Leverkusen heim í erfiðum leik í dag en ljóst er að ef illa gengur í dag verður Peter Bosz, stjóri Dortmund, orðinn mjög heitur í sínu sæti.

RB Leipzig er í öðru sæti og heimsækir Hoffenheim sem hefur komið á óvart á tímabilinu og þá eiga liðsfélagar Arons Jóhannssonar í Werder Bremen leik við Stuttgart.

Hér að neðan eru leikir dagsins.

Leikir dagsins:
14:30 Mainz - Augsburg (Stöð 2 Sport 2)
14:30 Bayern - Hannover (Stöð 2 Sport 3)
14:30 Leverkusen - Dortmund
14:30 Hoffenheim - Leipzig
14:30 Werder Bremen - Stuttgart
17:30 Schalke - Köln
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner