„Ég er spenntur fyrir komandi tímum," segir Almarr Ormarsson sem er kominn aftur í KA frá KR. Þessi 27 ára leikmaður var kynntur á fréttamannafundi hjá KA í dag. Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
„KA-menn fengu leyfi til að ræða við mig og ég ræddi við þá og þannig fór þetta af stað. Mér leið mjög vel í KR. Þetta er flottur klúbbur með góða umgjörð. Ég hefði kannski viljað spila aðeins fleiri mínútur í KR en sé alls ekki eftir því að hafa farið þangað."
Almarr hefur spilað með KR síðustu tvö ár en er uppalinn hjá KA, hann lék síðast með Akureyrarliðinu í 1. deild árið 2008.
„Þetta er töluvert betra lið en þegar ég var hérna síðast. Að sjálfsögðu er það markmiðið að fara beint upp. Vonandi tekst það."
KA tókst ekki ætlunarverk sitt að komast upp úr 1. deildinni í fyrra en setur stefnuna á að bæta úr því í ár.
Athugasemdir