„Það er gaman að vinna titla, sama í hvað móti það er," sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigur í Fótbolta.nót mótinu í dag. Stjarnan vann Grindavík 1-0 úrslitaleik í Kórnum.
„Leikurinn í dag var líka skemmtilegasti leikurinn í mótinu. Um leið og maður er kominn í úrslitaleik finnst manni eins og maður leggi sig aðeins meira fram. Það var gaman að fá svona leik. Svo fengum við líka kynnast því að vera einum færri."

Stjarnan hefur verið að spila sterkan varnarleik í mótinu og hefur aðeins fengið á sitt eitt mark í fjórum leikjum.
„Þetta er búið að smella vel hjá okkur. Æfingarnar hafa ekki verið mjög taktískar, við erum mikið úti og það er kalt. Við erum ekki í þrotlausum varnaræfingum, en það er mjög jákvætt að við sem lið höfum mikinn skilning á milli hvors annars."
Veigar Páll Gunnarsson og Jón Þór Hauksson eru komnir inn í þjálfarateymi Stjörnunnar. Hvernig hefur þeim gengið?
„Þeir eru búnir að koma virkilega vel inn í þetta. Það er greinilegt að það er skýr verkaskipting hjá þeim. Þeir koma virkilega sterkir inn. Þeir hafa hleypt nýju lífi í þetta."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir