Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 03. mars 2015 13:30
Elvar Geir Magnússon
Berjast Chelsea og Man Utd um Pedro?
Pedro fagnar marki fyrir Börsunga.
Pedro fagnar marki fyrir Börsunga.
Mynd: Getty Images
AS á Spáni segir að Chelsea og Manchester United hafi áhuga á framherjanum Pedro hjá Barcelona.

Þessi 27 ára leikmaður hefur bara byrjað ellefu leiki í spænsku deildinni á þessu tímabili og ólíklegt að hann nái að skáka Lionel Messi, Luis Suarez og Neymar um sæti í liðinu.

Pedro er samningsbundinn Barca til loka næsta tímabils en viðurkenndi nýlega að hann væri ekki viss um hvað framtíðin bæri í skauti sér.

Börsungar vilja halda Pedro í leikmannahópi sínum en hann vill fá fleiri spilmínútur.

Arsenal sendi inn fyrirspurn um leikmanninn síðasta sumar en fékk þær upplýsingar að Luis Enrique vildi ekki selja hann.
Athugasemdir
banner
banner